22.07.1931
Neðri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (2174)
47. mál, undanþága skóla og sjúkrahúsa frá afnotagjaldi til útvarps
Jónas Þorbergsson:
Ég þarf ekki að bæta miklu við það, sem ég hefi áður sagt.
Þetta getur verið bæði hégómamál og varhugavert, þar sem það er hégómamál fyrir hverja stofnun, t. d. skóla og sjúkrahús, hvort hún greiðir 30 kr. meira eða minna í rekstrarkostnað, en hinsvegar er varhugavert að opna undanþáguleiðina.
Ég hefi ekki sannfærzt að rökum hv. flm. um, að þetta frv. eigi rétt á sér, og held fast við mína fyrri ósk um, að hv. dm. felli frv. nú þegar.