23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (2201)

58. mál, verksmiðja til bræðslu síldar

Jóhann Jósefsson:

Af því hv. 1. flm. þessa frv. er ekki við, þá skal ég aðeins taka það fram, að þetta frv. lá fyrir síðasta þingi. en varð þá ekki útrætt. Grg. sú, er frv. fylgir, er sú sama og fylgdi því áður. Frv. þetta miðar að öllu leyti í sömu átt og frv. um breyt. um stjórn einkasölu á síld, sem sömu flm. flytja í þessari hv. deild.

Ég skal ekki fjölyrða frekar um frv.; það hefir verið skýrt fyrir þeim hv. þm., sem ekki hafa verið hér áður, og grg. er svo glögg, að óþarfi er að fara fleiri orðum um málið nú.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og til sjútvn.