07.08.1931
Neðri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (2292)
83. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Frsm. (Einar Arnórsson):
Allshn. hefir orðið sammála um að mæla með 1. gr. frv. óbreyttri til samþykktar. En hún leggur til, að lítilsháttar breyt. verði gerð á 2. gr. Þegar gert er ráð fyrir í skipulagningu kauptúna, að eignir einstakra manna skerðist að einhverju leyti sökum skipulagsbreyt., er það bæði sanngjarnt og eðlilegt, að þeim verði bætt það tjón að fullu. En hinsvegar finnst n. eigi ástæða til þess að lögfesta, að viðkomanda verði greiddar bætur fyrr en hann sannar eða gerir sennilegt, að fyrirhuguð skipulagsbreyting valdi honum tjóni, og leggur n. því til, að 2. gr. verði breytt á þá leið.