17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (2393)

38. mál, vegalög

Pétur Ottesen:

Ég skil ekki, að hv. þm. Barð. skuli fyrir hvern mun vilja fá þetta mál inn í samgmn. til þess að koma fram einhverjum breyt. á vegamálum í Barðastrandarsýslu, því að það myndi einungis verða hindrandi fyrir framgang slíkrar breytingar. Nefndin hefir t. d. fengið frv. um breyt. á brúarl. til meðferðar, og bólar ekki á því ennþá, sér ekki einu sinni á klaufirnar. Er það víst tiláætlun nefndarinnar að sálga því alveg.