17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (2397)

38. mál, vegalög

Sveinbjörn Högnason:

Ræða hv. þm. Borgf. finnst mér nægileg ástæða til að vísa málinu til samgmn. Finnst mér einkennilegt, ef n. á ekki að fá tækifæri til að athuga svo stórfelldar breyt. á vegakerfi landsins og þær, sem hér er um að ræða. Er það nauðsynlegt, að málið komi fyrir samgmn. beggja deilda. Það er víst ofsagt hjá hv. þm. Borgf., að samgmn. þessarar deildar hafi legið svo mjög á málum, og á það þá víst ekki síður við um samgmn. Ed. um þetta mál.