15.07.1931
Sameinað þing: 1. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (2513)

Rannsókn kjörbréfa

Magnús Torfason:

Ég vil aðeins geta þess, að ég fyrir mitt leyti tók það fram, að ég gæti ekki verið með því að vísa málinu til kjörbréfanefndar áður en maður heyrði, hvað sá þingmaður, sem átti í hlut, hafði um málið að segja, blátt áfram af því, að fyrir lágu engar sannanir um það, að þessi kæra væri rétt.