21.07.1931
Sameinað þing: 2. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (2547)

Stjórnarmyndun

Jón Þorláksson:

Að gefnu tilefni frá hv. 2. landsk. vil ég lýsa yfir því, að Sjálfstæðisflokkurinn lítur svo á, að hver sú stjórn, sem Framsóknarflokkurinn myndar, sé bráðabirgðastjórn, þar sem hún hefir ekki meiri hl. þjóðarinnar að baki sér.