04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (2582)

Afgreiðsla þingmála

Bergur Jónsson:

Ég vil gera grein fyrir þessu máli fyrir hönd allshn. Hún hefir fengið mörg mál til athugunar og þar á meðal tvö af þeim, sem hv. 3. þm. Reykv. nefndi: Frv. til l. um opinbera vinnu og frv. til l. um læknishéraðasjóði. Bæði þessi frv. hafa verið til umr. í n., þó að nm. hafi ekki ennþá komið sér saman um, hvernig skuli afgr. þau. N. hefir afgr, 6 mál, og verð ég að telja það góð vinnubrögð á jafnskömmum tíma.