11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (2588)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Mér er náttúrlega alveg ókunnugt um þetta atriði, sem hv. þm. Seyðf. minntist á, og mér þykir alls ekki trúlegt, að svo sé, því að það er venja að afgr. mál, þótt skiptar séu skoðanir um það innan n.