14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (2597)

Afgreiðsla þingmála

Héðinn Valdimarsson:

Ég hefi nokkrum sinnum spurt hæstv. forseta um ýmis mál frá jafnaðarmönnum og hvað þeim liði í n., og ég vil gjarnan fá svar við því áður en þinginu lýkur. T. d. vildi ég vita, hvað nefndin hugsar sér að gera við frv. um jöfnunarsjóð ríkisins og hvort ekki væri hægt að fá það á dagskrá á morgun.