22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)

Afgreiðsla þingmála

Jakob Möller:

Í þeirri von, að hv. 2. landsk. geri nú slíkt hið sama, þá skal ég svara hans fyrirspurn. Ég vil minna hann á, að hv. 4. landsk. spurði, hve dýr eða ódýr hann hefði verið í samningunum við Framsóknarfl., og í því trausti, að hann svari því hreinskilnislega, skal ég upplýsa hann um, að það er engin hæfa í því, að Sjálfstæðisfl. hafi gert Framsóknarfl. nokkur boð í sambandi við tóbakseinkasöluna.