22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1340 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)
Afgreiðsla mála í stjórnarráðinu
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Mér er kunnugt um, að slíkar raddir hafa komið frá fleirum en hv. þm. Ísaf. Mun það eiga sér stað í öllum löndum, að slíkar umkvartanir komi fram. Það er heldur ekkert að undra, þó að ástandið sé slæmt hjá okkur, því að öll ytri skilyrði eru hér slæm. Bæði er stjórnarráðshúsið óhæfilega lítið — þrengslin í dómsmrn. eru t. d. svo mikil, að þar er varla hægt að snúa sér við — og svo er vöxturinn í þjóðfél. okkar bæði ör og mikill. Ennfremur skal ég geta þess, að á síðustu árum hafa allir skrifstofustjórarnir verið meira og minna forfallaðir. Í ár hafa t. d. tveir þeirra verið veikir mánuðum saman, og í fyrra var sá þriðji veikur. — Annars skal ég gera hvað ég get til þess að bæta úr þessu.
Það eina tilfelli, sem hv. þm. Ísaf. nefndi, reglugerð fyrir kosningar til sveitar- og bæjarstjórna, held ég, að hafi ekki verið stj. einni að kenna, heldur og bæjarstjórn Rvíkur. Það var leitað samvinnu við hana um þessi mál, og hygg ég, að drátturinn hafi stafað af því, að dráttur hefir orðið á afgreiðslunni á báðum stöðum.
V. Minning Einars Jónssonar.
Á 4. fundi í Sþ., 25. júlí, áður en gengið væri til dagskrár, mælti