25.07.1931
Sameinað þing: 4. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)

Kosningar

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil geta þess, að ég mun ekki taka þátt í þessari kosningu, því að hún er einber hégómi.

Forseta barst einn listi, er á stóð Aðalsteinn Kristinsson. — Þar sem ekki komu fleiri uppástungur, lýsti forseti yfir, að kosinn væri án atkvgr.:

Aðalsteinn Kristinsson forstjóri.