24.08.1931
Neðri deild: 41. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta er síðasti fundur deildarinnar. Skýrslu um störf hennar mun forseti Sþ. flytja að þinglausnum. Það er því ekki annað fyrir hendi en að slíta störfum deildarinnar. Vil ég tjá öllum þdm. mínar beztu þakkir fyrir einkar góða samvinnu og fyrir það, hve létta þeir hafa gert mér fundarstjórn. Vil ég árna öllum þingheimi alls hins bezta og hv. þdm. farsællar og góðrar heimkomu. Vona ég, að við megum allir heilir hittast á næsta þingi.