19.08.1931
Efri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

1. mál, fjárlög 1932

Pétur Magnússon:

Ég get ekki skilið, að hærri till. eigi ekki að koma til atkv. fyrst, því að ef lægri till. er samþ., er hin þar með útilokuð. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. forseta að bera upp till. hv. 5. landsk. í tvennu lagi, upphæðina sér og ákvæði till. sér.