19.08.1931
Efri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

1. mál, fjárlög 1932

Pétur Magnússon:

Ég vil aðeins beina því til hv. þdm., að það er ekki þeirra sök, þótt hv. 5. landsk. hafi orðað brtt. sína vitlaust, og hv. þm. verður að lúta venjulegum þingsköpum í þessu efni. Það nær vitanlega ekki nokkurri átt, að þeim dm. sé ekki heimilt að greiða atkv. með hærri upphæðinni, sem það vilja gera.