21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (295)

1. mál, fjárlög 1932

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég ætla aðeins að taka undir þau tilmæli með hv. frsm., að fjárlagafrv. verði afgr. án breyt. Það eru ekki svo stórvægilegar brtt., sem fram hafa komið, að ástæða sé að hrekja frv. milli d. þess vegna; það mundi og flýta fyrir þingslitum, ef fjárl. yrðu afgr. að þessu sinni. — Að öðru leyti finn ég ekki ástæðu til að segja margt um þessi fjárl. Ég tek við þeim fullbúnum, líkt og fjárl. yfirstandandi árs.