22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

2. mál, fjáraukalög 1929

Forseti (GÓ):

Það getur verið rétt hjá hv. 1. þm. Reykv., að það ætti að standa „hver þingmaður“, en ekki „hver deildarmaður“, en hitt er, að það stendur aðeins „þingmaður“. Annars skal ég láta hv. þm. vita, að ég talaði um þetta mál við einn af flokksbræðrum hans, sem nærri því er eins skynsamur og hv. þm., og var hann á sama máli og ég um þetta atriði.