11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (413)
3. mál, landsreikningar 1929
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil undirstrika það, að þau samtöl, sem rætt hefir verið um, fóru eingöngu fram í sambandi við kosningarnar. Um efni bókarinnar get ég ekki talað; hefi ekki lesið hana. Hv. þm. G.-K. virðist hafa lesið hana. en ég hefi ekkert kynnt mér hana.