19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (573)

12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun

Forseti (JörB):

Ég hefi tekið mál þetta á dagskrá samkv. ósk, og form. fjhn. gat þess, að hann sæi ekki ástæðu til, að málið yrði ekki tekið fyrir, þótt n. hefði ekki látið uppi álit sitt.