22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (590)
12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég vil endurtaka það, að þó ég hafi viðurkennt, að orðalagið á 2–3 stöðum sé tvírætt, þá verði þau ákvæði frv. ótvíræð öllum kunnugum. Og þegar þessar umr. eru komnar í þingtíðindin, þarf ekki að óttast neinn misskilning.