28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

1. mál, fjárlög 1932

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég á hér aðeins 2 brtt., og hefir hv. 1. þm. Skagf. gert grein fyrir annari, þeirri, að ekki verði færður niður styrkur til Íþróttasambands Íslands. Ég taldi ekki heppilegt að fella burt þennan styrk eða færa niður, nú þegar nauðsyn ber til þess að efla íþróttalífið, ekki sízt í kaupstöðunum. Það er augljóst, að margir menn verða ekki með öðru móti betur varðir fyrir þeim hættum, sem þar steðja að, en með iðkun íþrótta. Og íþróttasambandið hefir sýnt sig að vera svo góð stofnun, að því er vel trúandi til þess að fara með þetta fé 1)