28.07.1931
Efri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í B-deild Alþingistíðinda. (675)
89. mál, innheimta meðlaga
Frsm. (Magnús Torfason):
Ég get að öll leyti vísað til þess, sem ég hefi sagt um mál það, sem hér var til umr. næst á undan (um hjúskall, ættleiðingu og lögráð). Það eru í l. gr. þessa samnings ákvæði, sem ganga í sömu átt og ákvæðin í 22. gr. hins samningsins. Nú er, að því er þennan samning snertir, fyrir okkur enn ríkari ástæða til að samþykkja hann en nokkurntíma hinn samninginn. Það hefir vitanlega gengið seint og silalega að fá slík meðlög úr nágrannarikjunum, og segi ég það án þess ég ætli sérstaklega að gefa nokkrum sök þar á. Ég vil því mælast til, að hv. d. samþykki þetta frv.