28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
1. mál, fjárlög 1932
Jónas Þorbergsson:
Ég hefi ekki ástæðu til langrar ræðu; ég ætla aðeins að leiðrétta misskilning hv. þm. N.-Ísf., þar sem hann kvað mig hafa sagt í ræðu, að samþingismenn hv. þm. Vestm. hefðu gert tilraun til þess að misnota útvarpið í pólitískum tilgangi. Ef. hv. þm. hefir heyrzt þetta, þá er það algerlega rangt, því að ég hefi aldrei sagt þetta og því síður meint það, ég sagði samflokksmenn hv. þm. Vestm., og ég byggði það á efni talskeytis þess, sem um var verið að ræða og ótvírætt vitnaði um upprunann. Það hefir snert hv. þm. N.-Ísf. sérstaklega vegna þess, að skeytið var sent í hans kjördæmi. Skeyti þetta vakti hvarvetna hina mestu furðu og varð, eins og ég tók fram áðan, orsök þess, að ríkisstj. varð að banna að senda talskeyti gegnum útvarpsstöðina í Reykjavík. Það er ekki í fyrsta sinn, sem kjósendum hv. þm. N.-Ísf. hefir þótt ástæða til þess að beita nokkuð óvenjulegum aðferðum til þess að styðja að kosningu hans, og ég geri ráð fyrir því, að meðan hv. þm. er í framboði, muni við allar kosningar hans gerast ýms furðuleg atvik.