03.08.1931
Efri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (788)
168. mál, Útvegsbanki Íslands h/f á Ísafirði og Akureyri
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Fjhn. flytur þetta frv. eftir tilmælum fjmrh. Um efni frv. þarf ég ekki að fara mörgum orðum, því það skýrir sig sjálft. Með frv. þessu er farið fram á að veita Landsbankanum heimild til að kaupa víxla Útvegsbankans á Ísafirði og Akureyri. Og ástæðan fyrir því, að farið er fram á heimildina, er sú, að Útvegsbankinn hefir ekki getað fullnægt seðlainnleysingunum, sem honum ber samkv. lögum. Ástæðan er í annan máta sú, að Landsbankinn hefir ekki heimild til að kaupa víxlana. Að öðru leyti tel ég nægja að vísa til ástæðna, sem fram koma í fylgiskjölum við frv., sem eru bréf frá bankaráðum Útvegsbankans og Landsbankans.
Ég vil taka fram, að einn nm. hefir óbundið atkv. um efni frv., þótt hann teldi rétt, að frv. væri flutt. Annars geri ég ráð fyrir, að flestir þdm. geri sér ljóst, hvað í frv. felst. Ég tel ekki ástæðu til að vísa málinu til fjhn., þar sem hún flytur frv.