17.08.1931
Efri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

223. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Jón Þorláksson):

Ég hefi eiginlega engu við það að bæta, sem sagt er um frv. í grg. fyrir því á þskj. 223 og nál. á þskj. 312. Fjhn. hefir athugað þær tvær breyt. á veðdeildarlögunum, sem hér er um að ræða og grein er gerð fyrir á þessu þskj., og hún leggur til, að frv. verði samþ.