22.07.1931
Efri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (918)
25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Flm. (Magnús Torfason):
Ég hefi orðið þess var, að í hv. Nd. hafa verið borin fram þau hafnargerðafrv., sem afgr. voru þaðan á þinginu í vetur. Eitt af þeim var þetta frv., sem hér liggur fyrir, um lendingarbætur á Eyrarbakka. Fékk það rækilega athugun í hv. Nd. og var vísað til Ed. með yfirgnæfandi atkv.fjölda.
Ég vil aðeins geta þess, að nú er verið að mæla leiðina og hafnarsvæðið nákvæmar en áður, enda þótt fyrir lægju mjög góðir og nákvæmir uppdrættir um þá hluti.
Að öðru leyti vil ég vísa til meðferðar þessa frv. á síðasta þingi, grg. þeirrar, er þá fylgdi frv., og þeirra þskj. allra. Vil ég svo óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.