31.07.1931
Efri deild: 17. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (920)
25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Frsm. (Jónas Jónsson):
Þetta frv. er alveg shlj. öðru frv., sem lá fyrir hv. Nd. og var samþ. þar með litlum breyt. Það hefir nú verið athugað í sjútvn. þessarar hv. d., og mælir hún með því með þeirri einu breyt., að lánið fyrir sýslusjóðinn skuli tekið innanlands. Annars er óþarfi að eyð. fleiri orðum að frv.