03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (978)
120. mál, fiskimat
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Um þetta atriði komu einmitt fram ýmsar till. í n. Þar á meðal var till. frá forseta Fiskifélagsins, sem fór fram á að skylda yfirfiskimatsmennina til að hafa þessar tilraunir, sem hv. þm. G.-K. drap á, á hendi.
N. vildi fara milliveg og láta fiskimatsmennina hafa óbundnar hendur um þetta. Því var svo ákveðið, að leita skyldi samþykkis ráðuneytisins á reikningunum eftir á. N. áleit það nægilegan hemil. En sjálfsagt er þó að athuga fyrir 2. umr., hvort þörf muni vera á að þrengja heimildina.
Mér er kunnugt um, að fiskimatsmenn, sem eru vakandi yfir fiskinum, bæði meðan hann er í verkun og á eftir, geta gert athuganir til mikils gagns um fiskverkun og gæði salts o. þ. h. N. vildi því ekki binda hendur þessara manna, svo að þeir fengju ekki fyrirhöfn sína endurgoldna, en hinsvegar ekki gera þeim skylt að gera þetta.