24.02.1932
Efri deild: 10. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)

41. mál, ríkisábyrgð á innstæðufé Útvegsbanka Íslands

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég get látið mér nægja að vísa til skýringa, sem ég gaf á þessu máli á einkafundi í Sþ., og einnig til framsöguræðu í Nd., sem ég hygg að allmargir hv. þdm. Ed. hafi heyrt. — Ég óska, að mál þetta gangi nefndarlaust gegnum hv. deild og að það verði afgr sem l. á þessum degi, ef hv. d. fellst á frv.