01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

50. mál, leyfi til loftferða

Guðbrandur Ísberg:

Ég er ófús á að fara út í þær einstöku breyt., sem ég hefði kosið, að gerðar yrðu á frv. Ég hefi rætt um þetta mál við flokksmenn mína og ég geri ráð fyrir, að við tökum sameiginlega afstöðu til þess. Það gæti því komið til mála, að við snerum okkur til hv. samgmn. til þess að athuga, hvort hún vildi taka okkar aths. til greina og bera þær fram sem sínar, en ef það fengist ekki, þá má vel vera, að við komum fram með sérstakar brtt.