14.04.1932
Neðri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í C-deild Alþingistíðinda. (11152)

273. mál, alþýðutryggingar

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég get eftir atvikum látið mér nægja að vísa til grg. fyrir frv. um flutning þess, og leyfi mér aðeins að leggja til, að frv. verði vísað til allshn., að umr. lokinni, jafnframt sem ég læt þá ósk í ljós, að n. leyfi mér að sitja fund með sér, svo að ég þar geti gert frekari grein fyrir nauðsyn þessa máls. Ég þarf ekki að taka það fram, að ég vænti þess fastlega, að n. hraði afgreiðslu málsins svo sem frekast er unnt.