06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í C-deild Alþingistíðinda. (11177)
284. mál, samvinnufélög
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég heyri það, að hv. 3. þm. Reykv. hefir mikla þörf fyrir að ræða við mig í sambandi við þetta frv. mitt um viðauka við samvinnulögin. Þess vegna óska ég mjög eindregið eftir því f. h. okkar beggja, að hv. allshn. skili sem fyrst áliti sínu um frv. inn í þd., til þess að það verði tekið á dagskrá, svo að okkur 3. þm. Reykv. gefist tækifæri til að ræða málið og rifja upp söguna um þessar 200 kr., sem honum er svo tíðrétt um.