02.03.1932
Efri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í C-deild Alþingistíðinda. (11234)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvinsson:

Ég varpaði áðan fram þeirri einföldu spurningu, hvort hinir flokkarnir gætu fallizt á, að Alþýðufl., sem hefir 1 mann hér í d., gæti komið honum í n., en það þýðir að hinir flokkarnir skipi aðeins 2 menn hvor. Ég hefi núi fengið svar frá Sjálfstæðisflokknum, en ekki Framsóknarflokknum.