17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2380 í B-deild Alþingistíðinda. (11428)
Afgreiðsla þingmála
Ólafur Thors:
Forseti hefir gefið hv. þm. Dal. viðeigandi ráðningu fyrir fljótfærni sína. Hann hefir tekið fram, hvers vegna Sjálfstæðisfl. muni ekki greiða atkv. í þessum málum. Það er hlægilegt, þegar hv. þm. er að beina þeirri fyrirspurn til forseta, hvenær hann ætli að beita því refsivaldi að taka af þm. kaupið, ef þeir neita að greiða atkv. Heldur hann, að það hafi nokkur áhrif á hv. þm., þó að þeir missi af einum 12 kr.? Slíka skoðun hefir enginn nema sá, sem vanur er að selja sannfæringu sína. og það fyrir lítið verð.