18.03.1932
Neðri deild: 32. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2381 í B-deild Alþingistíðinda. (11433)
Afgreiðsla þingmála
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Fyrst hér er farið að spyrja um afgreiðslu þingmála, vil ég spyrjast fyrir um frv., sem ég bar hér fram um skipulag kauptúna og sjávarþorpa. Það mun hafa verið tekið af dagskrá 5. þ. m. Ég var þá ekki viðstaddur, en mér var sagt, að n. hefði óskað eftir að fá málið aftur til meðferðar og athugunar. Ég vil því beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann ýti undir afgreiðslu frv. hjá n. Ég sé enga ástæðu til, að þetta frv., sem er einfalt og hefir legið fyrir á undanförnum þingum, sé svo lengi hjá n. Ég geri ráð fyrir, að n. hafi viljað athuga einhverja smámuni, en það er meiningarlaust að líða henni að setjast alveg á frv.