12.04.1932
Neðri deild: 49. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2385 í B-deild Alþingistíðinda. (11439)
Afgreiðsla þingmála
Héðinn Valdimarsson:
Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir þá áminningu, sem hann hefir nú gefið n., en ég sný ekki aftur með það, að hæstv. forseti á sjálfur sök á því, að mörg af málum okkar jafnaðarmanna hafa komizt svo illa fram, því að hann hefir það a. m. k. á valdi sínu að haga svo málaröð á dagskrá, að þau mál gangi fyrir, sem enn hafa ekki verið tekin til 1. umr., en svo er um 14 af málum okkar jafnaðarmanna. En 13 eru þau málin, sem n. hafa nú setið á í lengri eða skemmri tíma án þess að afgreiða þau. Þar af eru 2 hjá menntmn., 2 hjá fjhn., 2 hjá sjútvn. og 7 hjá allshn. Lítur ekki út fyrir, að skipun n. hafi tekizt vel, þar sem þeim gengur svo seinlega að átta sig á málum og gefa út nál. um þau, eins og þm. eiga heimtingu á, að n. geri, skv. þingsköpum.