22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2390 í B-deild Alþingistíðinda. (11448)
Afgreiðsla þingmála
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil aðeins gefa ofurlitlar upplýsingar til viðbótar út af því, sem hv. þm. G.-K. spurðist fyrir um um afgreiðslu á breyt. á fátækral. Það er nefnilega ekki einungis í þessari d., sem liggja fyrir frv. um það, heldur einnig í hv. Ed. Auk þess var samþ. þáltill. í fyrra um, að undirbúnar væru breyt. á fátækralöggjöfinni. Hafa skrifstofustjórinn í atvmrn. og hagstofustjórinn samið um það frv. með mjög ýtarlegri grg., og hefir það verið afhent allshn. þingsins og mun nú liggja hjá allshn. Ed. Ég geri ráð fyrir, að það sé um það bil að koma fram frv. til slíkra l., og skrifstofustjóri Alþ. segir, að því verði útbýtt , í dag. Vona ég, að það geti orðið afgr.