04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (11497)

Stjórnarskipti

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég get ekki svarað þessari spurningu hv. þm., meðan hann skýrir ekki nánar, hvaða kærur þetta eru. Hann spyr aðeins um kæruna á bankastjóra Íslandsbanka og svo hinar kærurnar. Ég get lofað því að athuga þessi mál, en ég get ekkert sagt um þau, af því að ég þekki þau ekki, en að því er snertir mitt mál, þá hefi ég svarað því. Það var það eina mál, sem ég gat nokkuð um sagt, af því ég þekkti það.