04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2434 í B-deild Alþingistíðinda. (11511)

Stjórnarskipti

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Af því að þetta er það eina, sem ég get gert fyrir hv. 2. landsk. af því, sem hann hefir beðið mig um, skal ég láta það eftir honum, og vil því beina því til hæstv. forseta, að hann taki vantraustsyfirlýsinguna fyrir á nýjum fundi þegar að loknum þessum fundi.