04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2434 í B-deild Alþingistíðinda. (11512)

Stjórnarskipti

Forseti (EÁrna):

Ég mun verða við heim tilmælum að láta vantrauststill. koma til atkv. hér í sameinuðu þingi þegar í dag, en þar sem till. er ekki á dagskrá þessa fundar, verður að taka hana fyrir á 2 sérstökum fundum; þarf fyrst fund til að ákveða umr. um till., og síðan annan fund, þar sem hún sé rædd og atkv. látin ganga um hana. Mun ég því, til þess að þetta megi fram fara samkv. þingsköpum, halda þessa 2 fundi í sameinuðu þingi þegar að loknum þessum fundi. (JBald: Ég er ánægður með þessa skipan).