08.04.1932
Efri deild: 46. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)

60. mál, eignarnám á landspildu í Skeljavík

Frsm. (Pétur Magnússon):

Brtt. á þskj. 339 er að sjálfsögðu aðeins lagfæring. N. hafði sezt yfir, að það var ekki fram tekið í frv., að 25000 m2 sé hámarksstærð, en þetta er að sjálfsögðu tilætlunin, en ekki hitt, að binda það ákveðið við spildu af þessari stærð. Ég vænti þá, að hv. dm. samþ. till., ef það þykir nauðsynlegt að bera hana undir atkv. á annað borð.