15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1469 í B-deild Alþingistíðinda. (1290)

169. mál, verksmiðja til bræðslu síldar

Frsm. (Bergur Jónsson):

Sjútvn. leggur til, að frv. þetta verði samþ. eins og það liggur fyrir. Það er óhjákvæmileg afleiðing af því, að síldareinkasalan var lögð niður, að ákveða verður, hvernig skipa eigi stj. síldarverksmiðjunnar. Að öðru leyti þarf ég ekkert frekar um þetta að segja. Frv. ber það með sér, hvernig stj. verksmiðjunnar skuli skipuð.