14.03.1932
Efri deild: 28. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)
45. mál, tannlækningar
Bjarni Snæbjörnsson:
Ég gerði grein fyrir brtt. þeirri, sem ég flyt við þetta frv., þegar það var síðast til umr. í þessari hv. d. En af því að þá voru ekki allir hv. þdm. viðstaddir, vil ég geta þess aftur, að brtt. er borin fram með fullu samþykki landlæknis. Enda mun öllum ljóst, sem um þetta mál hugsa, að til þess eru sett leig um tannlækningar, að tryggja fólkinu, sem til tannlækna þarf að leita, að þeir séu sem bezt starfi sínu varnir. Og bezta tryggingin fyrir því mun vera sú, að þeir hafi lokið tannsmíðanámi hjá íslenzkum tannlæknum eða þá hjá viðurkenndum skóla erlendis, því að enn mun ekki vera svo komið, að tannlæknar hér á landi geri sér það að atvinnu að útskrifa menn í þeirri grein, þó slíkt eigi sér stað sumstaðar erlendis, t. d. í Danmörku. Þar mun vera hægt að fá vottorð um góða kunnáttu í tannsmíði hjá sumum tannlæknum, þó að viðkomandi hafi verið stuttan tíma við nám. Einungis hefir orðið að borga vel fyrir vottorðið og það heldur engin réttindi gefið innanlands.
Ég vil þess vegna mælast til, að hv. þdm. samþ. brtt. mína á þskj. 133.