05.05.1932
Efri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

1. mál, fjárlög 1933

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Út af viðbótartill. hv. 6. landsk. við mína till. vil ég taka það fram, að enda þótt þessi viðbótartill. sé ekki nauðsynleg, sé ég ekki ástæðu til annars en að samþ. hana, því að tilgangurinn með henni er að koma á friði í þessu prestakalli. Greiði ég því atkv. með henni.