23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)

288. mál, varnir gegn berklaveiki

Þorleifur Jónsson:

Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á því , að frsm. málsins er fjarstaddur, en hinsvegar allþýðingarmiklar brtt. við frv. frá mér og hv. þm. V.-Sk., og má búast við, að einhverjar umr. verði um málið. Ég vil því spyrja hæstv. forseta, hvort ekki muni rétt að fresta því.