14.04.1932
Neðri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)

35. mál, lækningaleyfi

Ólafur Thors:

Ég hefi engu við það að bæta, sem ég áður hefi sagt í þessu máli, öðru en því, að ég mun við 3. umr. flytja rökst. dagskrá um að vísa þessu máli frá nú vegna ónógs undirbúnings, með tilmælum um, að það verði lagt fyrir næsta þing, með þeim breyt., sem þurfa þykir. Það er rétt, að ekki er ástæða til þess að fella þetta frv., en ég held, að það hefði betra af því að bíða.