13.05.1932
Efri deild: 74. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2051 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Pétur Magnússon:

Ég hefi tilhneigingu til þess að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann gerði hæstv. forsrh. aðvart um það, að þetta mál er nú hér til umr. Mér finnst ástæða til þess, að hæstv. forsrh. skýri d. frá ástæðunum fyrir þessu frv., þar sem hér er hvorki um meira né minna að ræða en breyt. á fiskveiðalöggjöfinni, og það vegna eins landshluta eingöngu.