24.05.1932
Efri deild: 82. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2064 í B-deild Alþingistíðinda. (2333)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Frsm. ( Ingvar Pálmason):

Út af ummælum, sem hv. 4. landsk. beindi til sjútvn. við 2. umr. þessa máls, vil ég geta þess, að ég hefi leitað mér upplýsinga og get viðurkennt, að segja má, að ekki séu bein fyrirmæli í lögum, er hindri það, að stj. veiti leyfi sem þetta, en álit þinglegra, að frv. verði samþ. um þetta efni, og sé því ástæðu til að mælast til, að hv. deild samþ. frv. eins og það liggur fyrir.