28.05.1932
Efri deild: 86. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2265 í B-deild Alþingistíðinda. (2563)
256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna
Forseti (GÓ):
Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. 3. landsk., svo hljóðandi:
„Við 16. gr. Aftan af greininni falli orðin: „eða ógreiddum aflahlut“.
Brtt. þessi er skrifleg og auk þess of seint fram komin; þarf því tvennskonar afbrigði til þess hún megi koma til umr. og atkv.